Aðalvalmynd

Eitthvað um þykistu-föt

19. febrúar 2008 klukkan 20:07


Svona eyddi ég síðasta sunnudegi:


Nema kannski fyrir utan bjórinn, já og rófuna og kannski aðeins minna loðin...

Það er kannski ekki rétt að segja leti, því það er auðvitað frekar neikvætt orð. Verum aðeins jákvæðari og köllum þetta afslöppun. Var aðeins meira duglegri en að liggja bara upp í sófa því ég lá líka upp í rúmi og las bók. Ég er að lesa svo góða bók!
Ahhhh næs, njóta þess að gera EKKERT og leyfa sér það!

Milli þess sem að ég lá upp í rúminu og sófanum settist ég líka við tölvuna og þykistu verslaði mér á netinu allskonar dót. Fyrir fáfróða þá fer þykistu verslun fer þannig fram:

1. Þú ferð inn á síðu með varningi sem þú værir alveg til í að eignast
2. Skráir þig þar inn ( í mínu tilviki þá þarf ég bara að logga mig inn)
3. Skoðar þig um fyllir "innkaupakörfuna" stútfulla
4. Eftir að því er lokið ferðu og skoðar körfuna
5. Þá útilokarðu nokkra hluti sem eru "óþarfi"
6. Eftir standa hlutir (hjá mér, föt) sem þú mátt "kaupa"
7. Þú skoðar allt sem varð fyrir valinu
8. Þú lokar síðunni, örlítið hamingjusamir, eins og þú hafir verið að kaupa eitthvað.

Ef ég leyfði mér að kaupa allt sem ég fylli körfurnar af þá væri íbúðin svona:

Nema kannski með aðeins flottari fötum og ekki með þessum hallæriskellingum.

Ég er í ótrúlega góðu skapi Hlæjandi









Ævintýri hinnar íslensku Catrnar í Tígralandi

22. janúar 2008 klukkan 17:04
Frumsamið ljóð á staðnum eftir mig, hins eftirliggjandi aumingja-sjúklings á landi skítaveðurs.

Saknaðaróður til Catrnar

Það er veikindalykt af mér.
Oj, hvað ég er tussuleg.
Á ég að hósta á þig?!
Ha? nei?
Nú, þá blaka ég bara mínum eyrnabólgu eyrum
að þér.
Gæti líka knúsað þig
með beinverkjandi örmum mínum.
Eða kæft þig
með gígantísku magni af hálsbólguslími.
Þú vilt þá kannski frekar
þvottapoka-þvo mér,
því djöfull er vond lykt af mér.



Ég á ekki lengur systur á Íslandi. Ég á systur og "mág" á Indlandi. Furðuleg tilhugsun.

Þau lögðu af stað á sunnudaginn, verða í 3 mánuði. Catrn verður líklega í því að bjarga litlum öpum úr vændisþrælkun.
Auk þess mun hún taka að sér lestrarkennslu fyrir þá. Því eins og við vitum  þá er menntun sterkasti mátturinn!

Litla Harinakshi

Chitragandha er þriggja ára og þegar byrjuð að lesa


Milli þess sem hún bjargar öpunum og kennir þeim að lesa verður hún annar af þremur umsjónarmönnum  vatnsbrunns í norðurhéraði Bangalore, Dodjala, sjá meðfylgjandi kort:




Hér bíður fólk eftir að fá vatnið sitt, Catrn mun aðallega verða í því hlutverki að kenna fólki að fara í röð og bíða stillt.

Hún hefur nú þegar skráð sig á námskeið í því hvernig nota skál svokölluð "holu" klósett.

Það mun nú örugglega ekki veita af þar sem Pípi drulluson mun örugglega kíkja í heimsókn nokkrum sinnum.




















Þegar hún hefur svo komist almennilega inn í Indverska menningu mun hún taka að sér það gífurlega stóra verkefni að kenna Indverjum umferðarreglurnar!


Farðu nú bara varlega í þetta allt saman lilla mín, þá sérstaklega klósett námskeiðið. Mundu að fylgjast vel með, því það væri alveg klárlega þér líkt að misstíga þig og detta á "pípa" þegar hann væri komin út
Hissa











Overload

07. janúar 2008 klukkan 00:11



Nú skulum við líta yfir farinn veg tvö túsund og sjö


Janúar-Febrúar-Mars-Apríl-Maí
Ég man voða lítið eftir þessum tíma, tilfinningarugl, sljóleiki og doði. Fyrir nákvæmlega ári var ég í Loonyville. Ekkert smá skrítið að hugsa til þess.
cheer smileys

Í júní og júlí var ég á Reykjalund, sem bjargaði mér náttúrulega gjörsamlega! Hélt víst írskudagapartý, sem ég man ekkert sérstaklega eftir. Eina fúllerýið mitt á árinu... Missti hálfpartinn afþví, týndi mér í trúnó og vitleysu en hafði samt ótrúlega gaman af því. Braut hefðina mína og hjólaði ekki út í sjoppu að kaupa subbumat fyrir liðið eftir ballið. Mín var búin að byrgja sig upp! Nelson var 1 árs og Mario 3 ára.
Ágúst: Við skötuhjúin skelltum okkur í spontant ferð til Lanzarote, sem var Svooooo nice!

September var afskaplega viðburðarlítill, man hreinlega ekki eftir neinu stórvægilegu. Ég og Svanur áttum afmæli með viku millibili (en það gerst nú á hverju ári)


Október: Fékk loksins vinnuna mína, sem ég er svo sátt með. Keyptum okkur fullorðins bíl.

Nóvember: Tók við stöðunni minni í vinnunni-cue klikkaða stress!


Desember: einkenndist af VINNU, bókaflóði og stressi sem fór ekki minnkandi og er enn til staðar, núna í formi skólabókaflóðs. Get hreinlega ekki beðið eftir því að þessu ljúki. Klæjar í allan líkamann að skipuleggja hillurnar. múhahahahah hverjum öðrum finnst svona spennandi að raða og skipuleggja hillur...?

Ég spái því að þetta ár verði með einu orði líst, frábært. Get ekki beðið eftir að skrá pistil að ári.
Þetta er hins vegar frá mér til mín:
Á planinu fyrir þetta ár er að vinna upp tapaðan tíma, fara í skrilljón kósý útilegur, verða enn meira fullorðin við það að verða túttífemm. Og svo er ýmislegt annað sem ekki má ræða um eins og að * mun gerast, ** mun kannski gerast, *** er á "kannski" dagskránni og aldrei að vita nema **** verði að veruleika.






Segi þetta gott í bili, annars fer ég að æla regnbogum

 













Allsbert jólatré óskar öllum gleðilegra áramóta

31. desember 2007 klukkan 16:29
Það er náttúrulega alvitað að "lifandi" jólatré fella nálarnar...eeeeen ef maður gleymir að vökva "lifandi" tré þá gjörsamlega hristir það af sér nálarnar!
Sátum í sófanum um daginn, algjör þögn í húsinu, fyrir utan jólatréð, barrnálarnar að hrynja af því. Hægt að ryksuga heilu greinarnar af!

Ég tók mig til í dag og henti því fram af svölunum. Greyið. Gólfið er því allt í nálum hingað og þangað, hárið á mér er með grænar bita í sér, ég er með inn á mér, á milli tánna (því ég er alltaf á tánum heima) og inní eyrunum. Það er spurning um að setja gervitréð upp að ári.

Sveitin kallar í kvöld, rólegheit og rok, flugeldar fyrir heimsbyggðina skotnir upp (5 manns+2 hundar).




Eftir miðnætti förum við svo aftur á skagann. Aldrei að vita nema systir mín og "unnustinn" kíki á okkur úr bænum. Held að það sem togi mest í þau að koma er að fá að gista í 30cm breiða gestarúminu, saman.



Stella og Suzy bjóða í partý!


P.S.
Ég á von á ógissssslega miklu og flottu glingri eftir áramót því ég er búin að liggja yfir ebay í nokkra daga.

                 


En þetta er nú bara brotabrot af súper-kaupunum mínum Gráðugur
Ég er kaupóð kjélling sjitt, eins gott að ég eigi ekki kreditkort!








Hanky óskar öllum gleðilegra jóla

23. desember 2007 klukkan 00:28
Hver man ekki eftir honum þessum!!?


God jul
Glad Yule
Gleðileg jól
Eguberri on
Glædelig Jul
Sretan Bozic
Buon Natale
Veselé vánoce
Sing dhan fi lock
Vrolijk kerstfeest
Giáng sinh vui vé
Sheng dan kuai le
Maligayang Pasko
Gajan Kristnaskon
Kerismas mobarak
Geseënde Kersfees
Bada Din mubarak ho
Chag molad sameach
'iidu miilaadin sa'iidun
Bon nKul sana wntu tayyebeenadal


Fréttir úr mínu viðburðaríka lífi eru ekki flóknar. Einungis vinna, borða, vinna, sofa, vinna og vinna síðustu vikur. Dreymir meirað segja vinnu...

Ónæmiskerfið mitt var víst ekki að höndla þetta álag. Þurfti endilega að verða veik á AÐAL pöntunar-annatímanum. Það reddaðist samt eiginlega alveg. En sjitt hvað ég er búin að vera stressuð!!!
Get ekki beðið eftir að kl verði 1300 á aðfangadag, 3 daga frí, SWEET og svo langþráð. Vinna minnst 9 tíma á dag síðustu vikur, yfirleitt 10-11 tímar.

Er komin í svo mikinn jólagír. Við skötuhjú fórum og ætluðum að kaupa okkur jólatré áðan, kl hálf 9. En neeeii þá var bara búið að loka. Uss, sættum okkur sko ekki við það heldur "skutumst" bara í bæinn og fundum eitt helvíti krúttlegt. Hvað leggur maður ekki á sig fyrir hið fullkomna jólatré. Enginn tími í þetta á morgun. Ég að vinna til 2300. Mr. Dan verður "housewife" og verður að þrífa og leggja lokahönd á jólainnkaupin. Svo verður tréð skreytt, gólfið skúrað (því ég treysti bara sjálfri mér til þessUllandi) Þá verður komin nótt og löngu kominn tími til að fara að sofa því vinna kl 0900 daginn eftir til 1200. Þá hefur maður sig bara til og dúllar sér upp í sveit og hefur það kósí.


Christmas005


Christmastreat


Christmas014



















Jólabóla

11. desember 2007 klukkan 12:53
Hmmm kominn tími til

Á hverjum EINASTA DEGI fæ ég nýja bólu. Svona hefur þetta verið í um 3 mánuði, þær koma alltaf á sama stað. Ég er:


JÓLABÓKABÓLUBETA


Jólin eru komin hjá mér. Næstum allt jólaskraut komið upp. Flest allar jólagjafir komnar í pappír.

Næst á dagskrá er jólahreingerning og jólabakstur.


Ég er komin í þvílíkann jólagír!

Fíllinn hún Nelly

22. nóvember 2007 klukkan 21:01











Neihhhh bara svona í tilefni partý ársins 1. des. Er að reyna að sjá mig fyrir mér í animal printi. Ef fíll væri með alvöru "mynstur" þá myndi ég pottþétt taka það. Töff töff hún ég.

Annars er allt í gúddí hjér hjá mjér. Allt kreisí að gera í vinnunni. Sem er bara gott. Bækurnar gjörsamlega VELLA inn um dyrnar, hef varla undan að taka upp úr kössum. Hehehehehíhíhíhí bara gaman!

Nýji bíllinn okkar, Gaffy, varð fyrir smá árás í gær, þegar ég sat í stólnum í hár-sjæningu. Nýtt bretti á kallinn. Best að vera tryggður, sjúkkett mar!



Lifið heil
JÁ SÆLL




Geggjaðslega fullorðinstöff

11. nóvember 2007 klukkan 12:45

Gærdagurinn var snilldin ein!

Mr. Dan og pabbi hans Svanur, fóru í bæinn, að skoða bíl sem við Mr. Dan skoðuðum síðustu helgi. Málin þróuðust svo að nýr bíll stendur nú inn í bílskúr.

Badabing-badabúmm

Gjeggjaðsljéga töffaður fullorðins bíll. KATSJÍNNG!

Þessi er alveg nákvæmlega eins og okkar

Má eiginlega segja að hann sé "straight from the box" þar sem hann kom á götuna í síðasta mánuði. Þvílíkt súperverð að þessu tilboði var ekki hægt að hafna!
Ég er mikið búin að vera að spá hverskonar bíll þetta sé, komst loksins að þeirri niðurstöðu að þetta sé station/jepplings jeppi. jíííííííííííí

Við vorum það rosalega fullorðins í gær að við fórum á rúntinn kl hálf 1 í gærkvöldi. Afþví við erum einfaldlega svo töff fullorðins, þú skilör!
Héldum uppá bílakaupin með að fara niður í bílskúr þar sem "gauradótið" er. Píla og boxpúði. Þó nokkuð margar pílur frá mér hittu ekki spjaldið...en mesti lúseraskapurinn var þó í kringum boxpúðann. Mr. Dan var að sýna mér einhverjar kílingar og spörk. Ég kíldi, og braut næstum á mér hendina. Ætlaði svo að sýna þvílíkar listir og sparka SVO fast í púðann, braut næstum á mér öklann (hinn eina sanna ökkla) og fór næstum úr mjaðmalið. Mesti lúðaskapur sem sést hefur í þessu húsi. Mr. Dan hló og sagði þetta vera vegna lélegs forms, ég hélt nú ekki, ég er sko þvílíkt liðug, sjáðu bara hvað ég get snert púðann hátt með löppinni. SWIIIING---ááaaaahhhhhhh, ég fór næstum úr mjaðmalið aftur...þá var ég hætt þessari sýningu minni og fór í fýlu út í púðann! Helvítis púði, einhverntíman skal ég berja, og sparka úr honum líftóruna!!!! Öskrandi

Annars var veisla í dag, elskuleg amma mín hélt upp á 85 ára afmælið sitt. Namminamminamm kökur og kræsingar svo var klst pása, héldum svo í sunnudagssteikina hjá tengdó. Jemundur Jeremías hvað maður er búin að éta mikið í dag. Held að þetta sé spurning um 3 vikna svelt

Mínir nánustu segja að ég sé eitthvað misheppnuð "in the making" (sem þýðir að það hlýtur eitthvað að hafa farið úrskeiðis þegar ég var búin til, kringum jólin '82) en mig langar SVO í svona skautaskó eins og allir krakkar eru að rúlla á í dag. Langar bara svo að prufa þetta! Hlýtur að vera auðveldara en helv línuskautar. Nice að geta farið að kaupa í matinn og rúlla bara með kerrunni. Eða rúlla framhjá ösinni í kringlunni fyrir jólin....hmmmm bara ef þeir kæmu í stærri númerum...





Vesenis vinnujötun

27. október 2007 klukkan 17:36

Ég er byrjuð að vera með vesen í vinnunni.
Þrisvar sinnum þurft að fá frí, bara búin að vinna í tvær vikur. JEMINN! Fyrst var það náttúrulega Nelson sólgleraugna étari. En hin tvö skiptin voru algjörlega mín.

Fékk að fara til tannlæknis á fimmtudaginn. Búin að vera illt og vera aum útaf endajaxli sem trullaði sér ekki upp alla vikuna. 8 mánuðir er alveg nægur tími að hafa til koma upp. Eeeen neeeeiii best að vera bara með versta vesenið þegar hún byrjar að vinna.

Fór semsagt til tannlæknis, hann var svo ofurljúfur að gefa mér tíma í endajaxlatöku strax daginn eftir, kl 9 um morguninn (ég vinn semsagt frá 9-18). Ég tók tímann en ætlaði að ræða þetta við yfirkonuna mína. Hún sagði þetta vera í fínu lagi, en ég mætti nú alveg búast við því að verða frá. Ég hélt nú ekki, þvílíkur köggull.

Það fór þá þannig að ég lét taka þennan jaxl í gærmorgun. Mætti eldhress og dofin í vinnuna um leið og ég kláraði. Setti smá klaka á kjálkann á meðan ég pikkaði inn í tölvuna og vann svo mína vinnu.

Hafði ekki lyst á neinu og endaði á því að taka mér ekki hádegishlé. Alltaf var ég á leiðinni heim, hausverkur, draugatannverkur og gómverkur að plaga mig.

Kl. 11.30: Kannski ég stingi bara af fyrir mat...neee best að bíða til 2, þá eru þær allar komnar úr mat
Kl. 14: Neeeiii, ég er ekki að drepast það mikið. Sjáum til kl hálf 4 þá kemur stelpa á kassann
Kl.15.30: æjjj neeei, það er bara 1 og hálfur tími eftir, ég meika þetta alveg
Ég gerði það svosem, ógisslega dugleg, en ég var samt frekar útúr því og sljó. En samt húrra fyrir mér. Djöfull hefði ég ekki meikað þetta fyrir hálfu ári!!!
Þegar ég kom heim, fékk ég mér kjúklingastafasúpu og fór að sofa um hálf 8...ég var víst frekar búin á því. Ég svaf í rúma 14 tíma Hlæjandi

Í gær borðaði ég:
1 banana í morgunmat
kjúklingastafasúpu með niðurskornu skorpulausu brauði í kvöldmat
karamellu búðing í "eftirrétt"


Ég var aðframkomin af sulti og orkuleysi.


P.S. Ég bað um að fá að eiga tönnina, ég sýndi öllum, ógisslega stolt

Ég er 5 ára



Sjimmí sjimmí ja sjimmí jó sjimmí jei, giv mí ðö make or æ vill teik it avei

19. október 2007 klukkan 21:07

RIP


Já, veit ekki hversu margir kannast við þetta óldskúl lag, Ol' dirty Bastard. Sum heilalög er ekki hægt að útskýra...

 Ég er magnaður kyssari,
 svo get ég lamið þig í klessu,
 er með bros sem að bræðir þig
 og auk þess ofboðslega HEIT


Jejeee, þetta er bloggdrasl:

          A: Heitur/Heit
          Á: góð/ur í rúminu
          B: Magnaður kyssari
          C: ágætur kyssari
          D: skemmtilegur deitari
          Ð: er nörd á góðan hátt
          E: getur lamið þig í klessu
          É: með flott brjóst/sixpack
          F: brjálað fólk elskar þig
          G: elskar að brosa og hlæja
          H: fáránlega heitur/heit
          I: elskar að gilla
          Í: er húmoristi
          j: er mjög kósý
          K: æðisgengin/nn
          L: mjög góður kyssari
          M: hefur fallegustu augun
          N: auðvelt að verða ástfangin af
          O: hefur einn fallegasta persónuleika sem til er
          Ó: er kaldhæðin/nn
          P: vinsæl/ll hjá allskonar fólki
          Q: dýravinur
          R: er með flottan rass
          S: fær fólk til að hlægja
          T: bros sem að bræðir mann
          U: er mjög kynþokkafull/ur
          Ú: er hnakki/hnakkamella
          V : er ekki fordómafull/ur
          Y: hefur fallegar hendur
          Þ: er ástríðufull/ur
          Æ: finnst aldur afstæður
          Ö: er hræðilegur


Ég er svona hægt og sígandi að átta mig á því hvað ég var að fara út í þegar ég þáði vinnuna. Líst vel á, en...ábyrgðin er "nett".

Ég er að spá í að verða grafískur miðlari og hanna bókakápur.

Vorkenndu mér, ég hef slátt í löppunum, ái.

Mér finnst töff að vera bókanörd¨



ÚT!




Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur