Aðalvalmynd

Geggjaðslega fullorðinstöff

11. nóvember 2007 klukkan 12:45

Gærdagurinn var snilldin ein!

Mr. Dan og pabbi hans Svanur, fóru í bæinn, að skoða bíl sem við Mr. Dan skoðuðum síðustu helgi. Málin þróuðust svo að nýr bíll stendur nú inn í bílskúr.

Badabing-badabúmm

Gjeggjaðsljéga töffaður fullorðins bíll. KATSJÍNNG!

Þessi er alveg nákvæmlega eins og okkar

Má eiginlega segja að hann sé "straight from the box" þar sem hann kom á götuna í síðasta mánuði. Þvílíkt súperverð að þessu tilboði var ekki hægt að hafna!
Ég er mikið búin að vera að spá hverskonar bíll þetta sé, komst loksins að þeirri niðurstöðu að þetta sé station/jepplings jeppi. jíííííííííííí

Við vorum það rosalega fullorðins í gær að við fórum á rúntinn kl hálf 1 í gærkvöldi. Afþví við erum einfaldlega svo töff fullorðins, þú skilör!
Héldum uppá bílakaupin með að fara niður í bílskúr þar sem "gauradótið" er. Píla og boxpúði. Þó nokkuð margar pílur frá mér hittu ekki spjaldið...en mesti lúseraskapurinn var þó í kringum boxpúðann. Mr. Dan var að sýna mér einhverjar kílingar og spörk. Ég kíldi, og braut næstum á mér hendina. Ætlaði svo að sýna þvílíkar listir og sparka SVO fast í púðann, braut næstum á mér öklann (hinn eina sanna ökkla) og fór næstum úr mjaðmalið. Mesti lúðaskapur sem sést hefur í þessu húsi. Mr. Dan hló og sagði þetta vera vegna lélegs forms, ég hélt nú ekki, ég er sko þvílíkt liðug, sjáðu bara hvað ég get snert púðann hátt með löppinni. SWIIIING---ááaaaahhhhhhh, ég fór næstum úr mjaðmalið aftur...þá var ég hætt þessari sýningu minni og fór í fýlu út í púðann! Helvítis púði, einhverntíman skal ég berja, og sparka úr honum líftóruna!!!! Öskrandi

Annars var veisla í dag, elskuleg amma mín hélt upp á 85 ára afmælið sitt. Namminamminamm kökur og kræsingar svo var klst pása, héldum svo í sunnudagssteikina hjá tengdó. Jemundur Jeremías hvað maður er búin að éta mikið í dag. Held að þetta sé spurning um 3 vikna svelt

Mínir nánustu segja að ég sé eitthvað misheppnuð "in the making" (sem þýðir að það hlýtur eitthvað að hafa farið úrskeiðis þegar ég var búin til, kringum jólin '82) en mig langar SVO í svona skautaskó eins og allir krakkar eru að rúlla á í dag. Langar bara svo að prufa þetta! Hlýtur að vera auðveldara en helv línuskautar. Nice að geta farið að kaupa í matinn og rúlla bara með kerrunni. Eða rúlla framhjá ösinni í kringlunni fyrir jólin....hmmmm bara ef þeir kæmu í stærri númerum...





 
Ólöf Helga
Vá geggjaður bíll!!! til hamingju með hann;)
en sammála þessu með skautaskóna, fínt að vera á þeim í stórverslun með körfuna...maður yrði örugglega geggjað fljótur að versla inn allavega!!!:)
Hafðu það gott sæta!
#1
14. nóvember 2007 klukkan 11:38
VÓÓÓÓÓ!!! rosalega flottur bíll...!!! til hamingju!
suujett...hvað þið eruð fullorðin! komin á jeppa og farið í 85 ára afmæli.... hehe...:) nei djók
nú verðuru að bjóða kellingunni á tónleika/rúnt....híhí...
#2
15. nóvember 2007 klukkan 15:39

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur